Óskað er eftir tilnefningum til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins 2011.

Til greina koma allir sem hafa lagt sitt af mörkum til að bæta íslenskt samfélag.

Skorað er á lesendur Fréttablaðsins að senda inn tilnefningar um fólk og félagasamtök sem eiga skilið virðingarvott fyrir verk sín. Allir koma til greina, jafnt óþekktir einstaklingar sem vinna störf sín í hljóði, félagasamtök eða þjóðþekktir karlar og konur sem hafa með gjörðum sínum og framgöngu verið öðrum fyrirmynd.

Skilafrestur er til miðnættis þann 21. febrúar.

Samfélagsverðlaunin eru veitt í fimm flokkum:
  1. Hvunndagshetjan

    Einstaklingur sem sýndi einstaka óeigingirni eða hugrekki, hvort sem það var við einn atburð eða með vinnu að ákveðnum málaflokki í lengri tíma.
  2. Frá kynslóð til kynslóðar

    Hér koma til greina kennarar, leiðbeinendur, þjálfarar eða aðrir uppfræðarar sem skarað hafa fram úr á einhvern hátt. Einnig koma til greina félagasamtök sem sinna börnum af sérstökum metnaði og alúð.
  3. Til atlögu gegn fordómum

    Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa unnið ötullega að því að eyða fordómum í samfélaginu.
  4. Heiðursverðlaun

    Einstaklingur sem hefur helgað líf sitt baráttu fyrir betra samfélagi.
  5. Samfélagsverðlaunin

    Félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum til að gera íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll. Verðlaunafé fyrir sjálf samfélagsverðlaunin er ein milljón króna.
Fyllið út formið hérna fyrir neðan eða sendið tilnefningar með tölvupósti á netfangið samfelagsverdlaun@frettabladid.is eða bréfleiðis merkt Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík. Frestur til að skila inn tilnefningum rennur út á miðnætti þann 21. febrúar. Dómnefnd mun taka allar innsendar tillögur til skoðunar. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt í apríl.

Flokkur:


Nafn á tilnefndum samtökum eða einstaklingi:


Svaraðu eingöngu þessum tveimur spurningum ef um samtök er að ræða:

Meginstörf hópsins?


Fær hópurinn styrki þá hvaða?


Fylltu út hér að neðan í allt að 500 orðum.
Samtök: Helstu afrek hópsins til dagsins í dag?
Einstaklingar: Af hverju á einstaklingurinn skilið að fá verðlaun?


Nafn þitt:

Símanúmer:

Tölvupóstur: